dýrahópur og einkenni lóunnar
Dýrahópur
Latneska heiti heiðlóu er Pluvialis apricaria og enska heitið Golden Plover. Heiðlóa, sem jafnan er nefnd lóa, er einkennisfugl íslensks þurrlendis. Hún er vaðfugl af lóuætt en er einnig algengur varpfugl á Íslandi. Lóan flýgur á veturna til heitari landa og kemur svo aftur til Íslands á vorin. Hún er því líka farfugl.
Einkenni
Lóan er meðalstór vaðfugl, allþéttvaxin og hálsstutt. Vængirnir eru fremur langir. Fullorðin lóa í sumarbúningi er svört að framan og neðan en gul-og dökkflikrótt að ofan. Svarti liturinn nær ofan frá augum aftur fyrir fætur. Á milli svarta litarins og gulfikrótta litarins á bakinu er hvít rönd. Hvíta röndin hverfur á haustin eins og svarti liturinn og lóan verður þá ljósleit að framan og á kviðnum. Goggurinn er svartur og mun styttri en á flestum öðrum vaðfuglum. Fæturnir eru dökkgráir og augun dökk.
Lóan er hraðfleyg og hana ber einnig hratt yfir þegar hún hleypur um á jörðu niðri.
Lóan er háfætt og á auðvelt með að vaða í grunnu vatni. Hún er með þrjár tær á hvorum fæti með stuttum klóm. Allar tær vísa fram. Þetta fótalag er algengt á vaðfuglum.