ÁHUGAVERÐAR SPURNINGAR
_
1) Hvaða fuglahóp tilheyrir lóa?
Heiðlóa, sem jafnan er kölluð lóa, er vaðfugl, algengur varpfugl á Íslandi og farfugl.
2) Hvernig lítur lóan út?
Lóan er háfætt og á auðvelt með að vaða í grunnu vatni. Hún er með þrjár tær á hvorum fæti með stuttum klóm. Allar tær vísa fram. Þetta fótalag er algengt á vaðfuglum. Lóan er allþéttvaxin og hálsstutt. Vængirnir eru fremur langir.
3) Hvaða litir eru á lóunni?
Fullorðin lóa í sumarbúningi er svört að framan og neðan er gul-og dökkflikrótt að ofan. Svarti liturinn nær ofan frá augum aftur fyrir fætur. Á milli svarta litarins og gulfikrótta litarins á bakinu er hvít rönd.
4) Breytist litur lóunnar?
Á haustin hverfur hvíti og svarti liturinn og lóan verður þá ljósleit að framan og á kviðnum.
5) Hver er meðalþyngd lóunnar?
Meðalþyngd lóunnar er um 200 gr.
6) Hver er stærð lóunnar?
Lóan er 26-29 cm á breidd þegar hún stendur en 67-76 cm á breidd þegar hún er með útþanda vængi á flugi.
7) Hvað heitir heiðlóan á ensku og latínu?
Á ensku heitir lóan Golden Plover en á latínu heitir hún Pluvialis apricaria.
8) Hvað verpir lóan mörgum eggjum og hvenær?
Lóan byrjar að verpa um miðjan maí. Hún verpir fjórum eggjum eins og flestir vaðfuglar á Íslandi. Eggin eru mógræn á litinn með óreglulegum, fremur þéttum svörtum blettum.
9) Hvenær kemur lóan til Íslands?
Lóan kemur til landsins síðast í mars eða fyrst í apríl. Hún er helsti vorboðinn í landinu. Það er oft sagt frá því í fréttunum þegar fyrst heyrist í lóunni á vorin.
10) Um lóuna hefur verið ort kvæðið :„ Lóan er komin‟. Hvað er sagt í kvæðinu að lóan geri?
Lóan er komin...að kveða burt snjóinn...
11) Á hverju lifir lóan?
Heiðlóan lifir aðallega á skordýrum inni til landsins, svo sem bjöllum og fiðrildarlifrum svo og ánamöðkum, en við sjóinn lifir hún líka á marflóm, burstaormum og fleiru.
12) Hvernig er goggurinn?
Hann er svartur, mun styttri en á flestur öðrum vaðfuglum.
13) Hvaða hljóð eru þekktust hjá lóunni?
Dírrin-dí og dýrðin-dýrðin sem söngur á varptímanum.