mökun og afkvæmi lóunnar
Mökun og varp
Lóan kemur til landsins síðast í mars eða fyrst í apríl. Varp- og ungatímabil er frá miðjum maí til lok ágústmánaðar. Lóan gerir sér hreiður í móum eða á melum. Hreiðrið er smá laut sem lóan verpir í. Biðilsflug með hægum, djúpum vængjatökum og söng er einkennandi. Ytra útlit karls og kvenfugls eru eins. Samfarir fugla fara einfaldlega þannig fram að karlfuglinn kemur sér fyrir uppi á kvenfuglinum, leggur kynop sitt við kynop kvenfuglsins og sæði berst úr karlfuglinum í kvenfuglinn. Samfarirnar taka aðeins örfáar sekúndur hjá langflestum fuglum. Hún verpir í mjúkan mosa, sem sígur undan lóunni og ýtist til hliðar og þá verður hreiðrið falleg skál í mosanum. Egg lóunnar eru mógræn á litinn með óreglulegum, fremur þéttum svörtum blettum.
Ungar
Ungarnir eru fiðraðir þegar þeir koma úr egginu og eru ekki í hreiðrinu nema fyrsta sólarhringinn eftir að þeir klekjast út. Eftir það fara þeir á kreik að kynna sér heiminn og leita sér að fæðu undir umsjón foreldranna. Ungarnir verða fleygir rúmlega eins mánaðar gamlir. Síðari hluta sumars, þegar ungarnir eru orðnir vel fleygir, safnast lóurnar saman í stóra hópa og fljúga um. Lóuhóparnir sækja mikið á nýslegin tún við sjó á þessum tíma og oft eru mörg hundruð lóur í hverjum hóp. Lóan fer úr landi í september og október.
Sé reynt að nálgast hreiður eða unga lóunnar þykist hún vera vængbrotin til að draga að sér athyglina og lokka óvininn burt.
Lóan er félagslynd utan varptíma.
Fjöldi eggja: 4
Liggur á: 30 daga
Ungatími: 25 - 33 dagar